
Bátanaust tekur upp minni skip og báta í slipp og sinnir einnig viðgerðum innanhúss.
Framhald >Bátanaust ehf. byggir á áratuga reynslu þeirra sem að því standa. Það sérhæfir sig í bátaviðgerðum, skipaviðgerðum og alhliða þjónustu við sjávarútveginn.
Fyrirtækið býður einnig upp á þá þjónustu að taka báta í geymslu um lengri eða skemmri tíma.
Að fyrirtækinu standa meðal annars eftirtalin þrjú fyrirtæki sem öll hafa starfað í langan tíma:
Starfsmenn þessara fyrirtækja eru milli 15 og 20 manns og hafa allir unnið lengi í sama starfi. Þetta eru vélvirkjar, trésmiðir, rafvirkjar, plastviðgerðarmenn og suðumenn svo eitthvað sé nefnt.
Aðstaðan hjá Bátanausti er mjög góð. Slippurinn getur tekið upp allt að 150 tonna skip. Smærri báta er hægt að taka upp og flytja inn í hús og vinna þar óháð veðurfari.
Tækjabúnaður Bátanausts er mjög góður og hefur fyrirtækið til dæmis oft endurnýjað báta og skip sem hafa sokkið.